|
Dagsetning
8. febrúar 2012
|
30.09.2008 18:22:59 / ljuflingur
Var búin að skrifa ýkt mikið og svo bara save-aðist það ekkert!! Andskotinn!! Nenni ekki að skrifa allt aftur...
Minna en 2 vikur i brottför, svaka spenna 
Ef einhver vill kaupa elskulega bílinn minn þá endilega hafið samband...engin útborgun, bara taka við láninu.
Nenni ekki meira...
»
21.09.2008 21:47:53 / ljuflingur
Já halló fólk! Held að þið vitið nú flest hvaða fréttir þetta eru en fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég að fara að flytja af landinu!! Ætla að skella mér til Hollands þann 13.okt og þar ætla ég að dvelja í einhvern tíma, en kem samt heim um jólin og svo aftur út snemma í janúar. Er að fara þangað sem au-pair hjá yndislegri íslenskri fjölskyldu, þau eiga 2 börn, 4 ára strák og 1 árs gamla stelpu. Þannig að ég held að það sé óhætt að segja að ég sé að láta gamlan draum rætast en þetta er eitthvað sem hefur blundað í mér ansi lengi Það verður fínt að breyta um umhverfi og komast bara aðeins í burtu, held ég þurfi bara á því að halda.
Næstu helgar mun ég því væntanlega vera non stop á djamminu, verð nú að nýta tímann sem ég á eftir hérna heima í að hitta sem flesta, og hvar hittir maður fólkið annarsstaðar en einmitt á djamminu 
Fór einmitt á eitt stykki djamm í gær, held að ég hafi aldrei drukkið í eins langan tíma í einu!! Opnaði fyrsta bjórinn minn klukkan 7 i gær og drakk síðasta bjórinn klukkan 9 í morgun!! Skemmti mér líka ekkert smá vel, var alveg þess virði að finna smá þynnku í dag 
Mamma og pabbi loksins að fara að koma heim, finnst þau búin að vera soldið lengi úti, farin að sakna þeirra mikið
En mikið meira held ég að það sé ekki, verið bara dugleg að kommenta, þá skal ég vera dugleg að blogga díll??
»
25.08.2008 13:01:34 / ljuflingur
Já það gerist nú ekki á hverjum sunnudegi að maður vakni kl. hálf átta um morguninn!! En ég veit ekki um neinn sem gerði það ekki í gær Silfrið staðreynd og ég er bara mjög sátt. Auðvitað vill maður alltaf meira en þessi árangur er samt sem áður svo frábær að Óli grís er að hugsa um að veita þeim öllum fálkaorðuna! Og þeir eiga það sko skilið, stóðu sig ekkert smá vel Fékk alveg gæsahúð þegar þeir tóku á mót verðlaununum  Og ég var ekkert þunn þegar ég vaknaði og ástæðan fyrir því er pottþétt sú að ég djammaði ekki neitt alla helgina!! Já þið lásuð rétt Er öll að róast nefnilega.. Ætlaði á Menningarnæturdjamm en bara nennti því ekki og kvöldið endaði bara með dvd og kósý heit
Það verður samt sko djammað almennilega um helgina, get ekki beðið. Stutt vinnuvika framundan, er í fríi á föstudaginn, fékk að taka einn sumarfrísdag, en svo er ég bara hætt hjá DHL Á sko eftir að sakna allra mjög mikið þarna, sérstaklega á ég eftir að sakna Boggu minnar sem hefur gert þetta sumar alveg frábært En það tekur bara eitthvað annað nýtt og spennandi við.
Margir byrjaðir að skreyta fyrir Sandgerðisdagana, það er svo gaman að taka rúnt núna á kvöldin og sjá hvað það bætist alltaf meira og meira við, allir mjög frumlegir.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, hef það bara mjög fínt og er örugglega bara eitt bros þessa dagana, bara svona ef þið eruð eitthvað að velta því fyrir ykkur
Ég hlakka bara til að sjá ykkur allar/öll um helgina, verður alveg svaka stuð hjá okkur!
»
19.08.2008 07:41:08 / ljuflingur
Stelpur! Það styttist í Sandgerðisdaga!! Eruði ekki orðnar spenntar?? Er ekki málið að skella sér á djammið þá? Langar ykkur öllum ekki að fara á ballið með Á móti sól? Vóó þvílíka spurningaflóðið hérna En þá er bara ennþá meiri ástæða fyrir ykkur að kommenta 
Ég held að ég sé á leiðinni á Menningarnótt um helgina, allavega síðast þegar ég vissi Held að ég verði í bænum alla helgina en mig langar samt á leikinn á laugardaginn, spurning um að skipta helginni bara niður, það þarf aðeins að ræða það Er einhver af ykkur á leiðinni á Menningarnóttina? Endilega veriði þá í bandi, held að ég verði bara ein
Það er sko busy dagur hjá mér í dag (sem betur fer bara), en ég er í vinnunni núna, skýst svo í hádeginu á einn stuttan fund, svo klipping og litun klukkan þrjú, svo leikur í kvöld í Mosó og þegar ég kem heim verður klukkan örugglega orðin það margt að ég fer bara fljótlega að sofa og þegar ég vakna í fyrramálið þá verður MIÐVIKUDAGURINN sem ég er búin að bíða soldið lengi eftir runninn upp!! Og það verður bara stuttur vinnudagur, vinn bara til tólf, og þá bara tekur eitt og annað við Þannig að spenningurinn hjá mér er soldið mikill og þið vitið nú allar hvers vegna...
Þetta varð miklu lengra blogg en ég ætlaði mér, en það er fínt, þá þarf ég ekki að koma með annað alveg strax.
Hafið það gott, sé ykkur...
»
03.07.2008 11:09:53 / ljuflingur
Skoðar einhver þessa síðu ennþá?? Held einhvern veginn ekki en svosem allt í lagi að tékka á þvi  Kannski byrja ég aftur ef ég nenni...hef alltaf svo lítin tíma, er nebbla með svo stórt heimili sem ég þarf að sjá um hahaha  Hafið það gott.
»
27.06.2007 20:12:11 / ljuflingur
Elsku Andrés og Silja innilega til hamingju
með fallegustu prinsessuna!! Hún er algjört æði Hún er 12
merkur og 48cm.
Ég er sko stoltasta frænkan í bænum
hehe....
Blogga meira seinna!
»
Síður: 1 2
|
|